Íþróttafélagið Fylkir ásamt félagsmiðstöðinni Árseli ætla í vetur að bjóða unglingum í 9. – 10.bekk að taka þátt í skemmtilegu starfi. Um er að ræða íþrótta- og tómstundahóp sem hittist þrisvar sinnum í viku. Þátttakendum stendur til boða að mæta í tíma á gervigrasvelli Fylkis einu sinni í viku þar sem spilaður verður m.a. fótbolti. Mæta í íþróttahús Árbæjarskóla einu sinni í viku þar sem boðið verður upp á t.d. körfubolta, handbolta, bandý, badminton o.fl. Síðan er boðið upp á tíma einu sinni í viku í Árseli þar sem hægt verður að spila pool, hlusta á tónlist, horfa á DVD og fleira skemmtilegt.
Mánudagar kl. 16:00 – 17:00 í Fylkishöll
Miðvikudagar kl. 16:00 – 17:10 í Árbæjarskóla
Fimmtudagar kl. 20:00 – 22:00 í Árseli
Tímarnir byrja í vikunni 15. - 19. september
Þeir sem verða í hópnum geta svo tekið þátt í að ákveða hvað verður gert í þeim tímum sem við höfum til umráða.
Fótbolti
Körfubolti
Handbolti
Bandý
Badminton
Tónlist
Pool
Ofl. (Mögulega keila, lasertag, bíó oþh)
· Til þess að vera hluti af þessum hóp þarf að skrá sig á opnunarkvöldi í Árseli 11 sept. Kl. 20:00. Einnig er hægt að skrá sig á bloggsíðu klúbbsins.· Ekkert kostar að taka þátt.· Ekki er skylda að mæta í alla tímana. Umsjónarmaður verður Hörður Guðjónsson, sími 861-3317
Bloggsíða klúbbsins: www.sportklubbur.blogcentral.is